NPA: Umsóknarfrestur til 30. nóvember 2015 Norðurslóðaáætlunin (NPA) styrkir samstarfsverkefni a.m.k. þriggja aðildarlanda, löndin innan NPA eru Ísland, Grænland, Færeyjar, Noregur Svíþjóð, Finnland, Írland, Norður-Írland og Skotland.
NPA óskar núna aðeins eftir styrkumsóknum sem falla undir áherslur 3 og 4:
3. Verkefni sem hlúa að og efla orkuöryggi samfélaga á norðurslóðum, hvetja til orkusparnaðar eða notkun endurnýjanlegra orkugjafa.
4. Verkefni sem vernda, þróa og koma á framfæri menningarlegri og náttúrlegri arfleið.
Nánari upplýsingar um áherslur á þriðja umsóknarfresti er að finna hér http://www.interreg-npa.eu/fileadmin/Calls/Third_Call/Third_Call_Announcemen
t.pdf
Hámarksstærð verkefna er 2 milljónir evra og er styrkur háður a.m.k. 40% mótframlagi umsóknaraðila en styrkur til fyrirtækis er háður a.m.k. 50% mótframlagi.
Mikilvægt er að verkefnin skili af sér afurð, vöru og/eða þjónustu sem eflir atvinnulíf, búsetu og/eða eykur öryggi íbúa á norðurslóðum.
Á heimasíðu NPA www.interreg-npa.eu
Senda á umsóknina rafrænt eigi síðar en á miðnætti 30. nóvember n.k. á Kaupmannahafnartíma.
A How to Apply Seminar verður haldið í Kaupmannahöfn 20. október n.k.
Nánari upplýsingar og ráðgjöf má fá hjá tengiliði NPA á Íslandi sem er Sigríður Elín Þórðardóttir, Byggðastofnun sími 455 5400 og netfang sigridur@byggdastofnun.is
Sigríður Elín Þórðardóttir
[cid:image001.jpg@01D101B9.469D0C50]
Icelandic Regional Development Institute Ártorg 1, 550 Sauðárkrókur.
Tel +3544555400, Fax +3544555499
E-mail: sigridur@byggdastofnun.is