Ungmennaþing Vesturlands 25.-27.september 2026

SSVFréttir

Ungmennaþing Vesturlands verður haldið á Hótel Borgarnesi helgina 25.-27.september 2026.

Um er að ræða samstarfsverkefni sveitarfélaga á Vesturlandi, Ungmennaráðs Vesturlands og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og er fjármagnað af Sóknaráætlun Vesturlands.

Markmið með þinginu er að:
– fá ungt fólk af öllu Vesturlandi saman
– stuðla að uppbyggingu í þágu ungs fólks á öllu Vesturlandi
– skapa vettvang fyrir samtal ungmenna við ráðamenn
– kynnast öðrum ungmennum, njóta og hafa gaman

Þátttakendur munu ræða stöðu ungmenna á Vesturlandi frá ýmsum hliðum auk þess sem boðið verður upp á kynningar sem tengjast málefnum ungs fólks og ungmennaráða.

 

Þingið er ætlað ungu fólki á aldrinum 14-25 ára.

 

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 40 ungmenni og verður lágmarksfjöldi tryggður frá hverju sveitarfélagi. Þátttakendum yngri en 18 ára þarf að fylgja ábyrgðaraðili.

Þátttaka er gjaldfrjáls og innifalið í þátttöku er gisting, matur, vinnugögn og annað tilheyrandi.

Nánari upplýsingar er hægt að fá frá:
Akranes: Ívar Orri ivar@torpid.is
Borgarbyggð: Sonja Lind sonjalind@borgarbyggd.is
Dalabyggð: Einar Björn einarbjorn@dalir.is
Eyja-og Miklaholtshreppur: Sigurbjörg Ottesen oddvita@eyjaogmikla.is
Grundarfjörður: Hinrik ithrott@grundarfjordur.is
Hvalfjarðarsveit: Helgi Óttar helgih@hvalfjardarsveit.is
Snæfellsbær: Margrét Sif margretsif@snb.is
Sveitarfélagið Stykkishólmur: Maggi magnus@stykkisholmur.is

Ferðakostnaður er í höndum sveitarfélaganna sjálfra.

 

Umsóknarfrestur er til og með 21. september 2026.

 

Framkvæmd þingsins er í höndum Borgarbyggðar, SSV og Ungmennaráðs Vesturlands.

Smelltu hér til að sækja um.