Treyjudagurinn er átaksdagur að frumkvæði Barna með krabbamein, þar sem landsmenn eru hvattir til að klæðast uppáhaldstreyjunni sinni og sýna þannig stuðning við börn sem glíma við krabbamein og fjölskyldur þeirra.
Af því tilefni mætti starfsfólk á skrifstofu SSV í treyjum í dag til að sýna börnum með krabbamein stuðning og samstöðu.
Hugmyndin er einföld – mæta í uppáhaldstreyjunni, taka mynd og deila henni á samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #treyjudagurinn.
Við hjá SSV erum stolt af því að taka þátt í þessu mikilvæga og fallega framtaki og sýna börnum með krabbamein að við stöndum með þeim.
