Gulur dagur hjá SSV – sýnum stuðning við geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir

SSVFréttir

SSV tekur þátt í vitundarvakningunni Gulur september og heldur upp á gulan dag 10. september, í tengslum við alþjóðlegan forvarnardag sjálfsvíga.

Gulur er litur sjálfsvígsforvarna og er markmið dagsins að vekja athygli á mikilvægi geðheilbrigðis, samkenndar og þess að láta sig líðan annarra varða. Allir geta tekið þátt með einföldum hætti – til dæmis með því að klæðast gulu, skreyta með gulu, lýsa upp umhverfið eða njóta gulra veitinga.

Á gulum degi er einnig hvatt til þess að taka myndir af gulri stemningu og deila á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #gulurseptember og merkja @gulurseptember.

Yfirskrift vitundarvakningarinnar er „Er allt í gulu?“ Hún vísar til samkenndar og sameiginlegrar ábyrgðar á því að hlúa að geðheilsu og vera til staðar fyrir hvert annað.

Ef þér líður illa eða þér finnst lífið stundum ekki þess virði að lifa því er mikilvægt að leita hjálpar. Einnig skiptir máli að bregðast við ef við höfum áhyggjur af ástvini, vini eða samstarfsfélaga – að spyrja, hlusta og gefa rými fyrir samtal getur skipt miklu máli.

Tökum þátt, klæðumst gulu og sýnum stuðning við geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir. Er allt í gulu?