SSV vekur athygli á að nú er opið fyrir umsóknir um styrki til meistaranema sem vinna að rannsóknartengdu lokaverkefni á sviði byggðaþróunar.
Byggðastofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki til meistaranema sem vinna að rannsóknartengdum lokaverkefnum á sviði byggðaþróunar. Sérstaklega er horft til verkefna sem tengjast markmiðum og áherslum byggðaáætlunar.
Allt að 1.200.000 kr. verður úthlutað í styrki og stefnt er að því að veita allt að fjóra styrki. Í umsókn skal gera grein fyrir verkefninu, markmiðum þess og með hvaða hætti það getur stuðlað að jákvæðri byggðaþróun.
Umsækjendur þurfa að vera skráðir í meistaranám við viðurkenndan háskóla. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Byggðastofnunar.
