Norðurslóðaáætlunin (NPA) Styrkumsóknir

Samtök Sveitarfélaga á VesturlandiFréttir

NPA: Umsóknarfrestur til 30. nóvember 2015 Norðurslóðaáætlunin (NPA) styrkir samstarfsverkefni a.m.k. þriggja aðildarlanda, löndin innan NPA eru Ísland, Grænland, Færeyjar, Noregur Svíþjóð, Finnland, Írland, Norður-Írland og Skotland.

NPA óskar núna aðeins eftir styrkumsóknum sem falla undir áherslur 3 og 4:

3. Verkefni sem hlúa að og efla orkuöryggi samfélaga á norðurslóðum, hvetja til orkusparnaðar eða notkun endurnýjanlegra orkugjafa.

4. Verkefni sem vernda, þróa og koma á framfæri menningarlegri og náttúrlegri arfleið.

Nánari upplýsingar um áherslur á þriðja umsóknarfresti er að finna hér http://www.interreg-npa.eu/fileadmin/Calls/Third_Call/Third_Call_Announcemen

t.pdf


Hámarksstærð verkefna er 2 milljónir evra og er styrkur háður a.m.k. 40% mótframlagi umsóknaraðila en styrkur til fyrirtækis er háður a.m.k. 50% mótframlagi.

Mikilvægt er að verkefnin skili af sér afurð, vöru og/eða þjónustu sem eflir atvinnulíf, búsetu og/eða eykur öryggi íbúa á norðurslóðum.

Á heimasíðu NPA www.interreg-npa.eu> er að finna umsóknargögn og leiðbeiningar undir valtakanum ,,For Applicants“ ,, Third Calls“

Senda á umsóknina rafrænt eigi síðar en á miðnætti 30. nóvember n.k. á Kaupmannahafnartíma.

A How to Apply Seminar verður haldið í Kaupmannahöfn 20. október n.k.

Nánari upplýsingar og ráðgjöf má fá hjá tengiliði NPA á Íslandi sem er Sigríður Elín Þórðardóttir, Byggðastofnun sími 455 5400 og netfang sigridur@byggdastofnun.is>

Sigríður Elín Þórðardóttir

[cid:image001.jpg@01D101B9.469D0C50]

Icelandic Regional Development Institute Ártorg 1, 550 Sauðárkrókur.

Tel +3544555400, Fax +3544555499

E-mail: sigridur@byggdastofnun.is>

www.byggdastofnun.is>