Það ættu öll að finna eitthvað fyrir sinn smekk á BARNÓ 2026! Hér má sjá kynningarstiklu fyrir barnamenningarhátíðina í ár. Barnó – BEST, MEST VEST! er áhersluverkefni Sóknaráætlunar Vesturlands og er studd af Barnamenningarsjóði Íslands. Barnó er stoltur samstarfsaðili List fyrir alla! Lifi listin og áfram barnamenning!!!! Tónlistin í myndbandinu er frá smiðju Takts og texta í Grundarfirði á Barnó …
Barnó! er hafin
Barnamenningarhátíð Vesturlands, Barnó – BEST MEST VEST!, er nú hafin en hátíðin var sett við hátíðlega athöfn í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík fimmtudaginn 1. október. Þar stigu á svið Jazzhljómsveit Tónlistarskóla Stykkishólms, Carla og Juan voru með sirkusatriði auk þess sem dagskráin var kynnt formlega. Kynnar kvöldsins voru engin önnur en leiklistargyðjan Thalía og Þorleifur, en þau skruppu alla leið …
Umsóknarfrestur á Barnó 2026 framlengdur til 24. ágúst!
ENGLISH BELOW Góðar fréttir fyrir skapandi fólk á Vesturlandi – umsóknarfrestur fyrir Barnó – BEST MEST VEST! 2026 hefur verið framlengdur til og með 24. ágúst 2026. Barnó er sameiginleg barnamenningarhátíð Vesturlands þar sem börn og ungmenni fá að njóta, skapa og taka virkan þátt í fjölbreyttu menningarlífi um allt Vesturland. Hátíðin fer fram í október 2026 og enn er …
Open Call for Barnó – BEST MEST VEST! 2026
Applications are now open for Barnó – BEST MEST VEST! 2026, West Iceland’s collaborative children’s culture festival taking place throughout October 2026. Artists, cultural institutions, schools, creative groups and/or individuals are invited to submit ideas for performances, workshops, exhibitions, creative projects, and cultural events for children and young people aged 0–18. Projects that encourage participation, creativity, inclusion, and cultural diversity …
OPIÐ KALL Á BARNÓ 2026 – BEST MEST VEST!
Nú er opið fyrir umsóknir og hugmyndir á Barnó – BEST MEST VEST! 2026 Barnó er sameiginleg barnamenningarhátíð Vesturlands þar sem börn og ungmenni fá að njóta, skapa og taka þátt í fjölbreyttu menningarlífi um allt Vesturland. Hátíðin fer fram í október 2026 og nú leitum við að spennandi atriðum, viðburðum og skapandi verkefnum fyrir börn og ungmenni á aldrinum …
Barnó hlýtur styrk úr Barnamenningarsjóði Íslands!
Barnó – BEST MEST VEST! hefur hlotið styrk úr Barnamenningarsjóði Íslands fyrir hátíðina sem mun fara fram um allt Vesturland í október 2026! Styrkurinn, sem var 6 milljónir króna er mikilvæg viðurkenning á verkefninu og kemur til viðbótar við þriggja milljóna króna framlag Sóknaráætlunar Vesturlands sem þegar hefur verið tryggt til verkefnisins. Í tilefni af styrkveitingunni kom stýrihópur Barnó saman til …
Við leitum að skapandi krökkum í stýrihóp BARNÓ ’26!
Við leitum eftir hressum og hugmyndaríkum krökkum á aldrinum 10–18 ára til að taka sæti í stýrihópi Barnó – BEST MEST VEST! – Barnamenningarhátíðar Vesturlands 2026. Stýrihópurinn mun taka virkan þátt í undirbúningi hátíðarinnar og fá tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á dagskrá og listræna stefnu hennar. Um er að ræða einstakt tækifæri fyrir börn með áhuga á listum …
Júlíana – Hátíð sögu og bóka sett í kvöld
Í kvöld verður formlega sett bókmenntahátíðin Júlíana – Hátíð sögu og bóka í Stykkishólmi. Setningin fer fram í Stykkishólmskirkju – Kirkjunni á borginni og hefst klukkan 20:00. Hátíðin fer nú fram í 13. sinn og hefur fests í sessi sem ein af stóru listahátíðunum á Vesturlandi. Í kvöld verða formlega veittar viðurkenningar fyrir samkeppnir á vegum viðburðarins, þar með talin …
List fyrir alla kallar eftir listviðburðum!
List fyrir alla auglýsir eftir umsóknum um listviðburði og verkefni á sviði barnamenningar fyrir grunnskólabörn. List fyrir alla er barnamenningarverkefni á vegum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins. Markmið verkefnisins er að miðla fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum til barna og ungmenna um land allt og jafna þannig aðgengi grunnskólabarna að listum óháð búsetu og efnahag. Starfandi listamenn, stofnanir og aðrir lögaðilar sem …
Úrslit í ljóðasamkeppni Júlíönu og Barnó
Ljóðasamkeppni Júlíönu – hátíðar sögu og bóka í Stykkishólmi – og Barnó – BEST MEST VEST er nú lokið og sýna niðurstöður að kraftmikill sköpunarvilji býr meðal ungs fólks á Vesturlandi. Keppnin var opin öllum nemendum á mið- og unglingastigi grunnskólanna á svæðinu og bárust fjölmörg ljóð víða að. Brynhildur Eyja Jóhannesdóttir, nemandi í 6. bekk Grunnskóla Borgarfjarðar, hlaut fyrsta …
- Page 1 of 2
- 1
- 2







