Vesturland kynnt á vinnustofu í Kanada

SSVFréttir

Kristján Guðmundsson var fulltrúi Markaðsstofu Vesturlands á vinnustofu í Kanada á dögunum. Íslandsstofa sá um skipulagningu vinnustofunnar en alls tóku 17 fyrirtæki og fjórar Markaðsstofur þátt.

Á vinnustofunni var íslensk ferðaþjónusta kynnt fyrir erlendum söluaðilum og ferðaskrifstofum. Viðburðurinn fór fram í þremur borgum: Toronto, Montreal og Vancouver.
Um 20 fundir voru haldnir á dag og voru þeir oft tvísetnir. Frekari upplýsingar um ferð Kristján má nálgast hér.