Glefsa – Búferlaflutningar 2025

SSVFréttir

Jákvæður flutningsjöfnuður í öllum sveitarfélögum á Vesturlandi síðustu fimm ár

Búferlaflutningar hafa verið hagfelldir á Vesturlandi undanfarin fimm ár. Í nýrri Glefsu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) kemur fram að fleiri fluttu til en frá öllum átta sveitarfélögum landshlutans á tímabilinu 2021–2025.

Árið 2025 var flutningsjöfnuður jákvæður í fimm sveitarfélögum af átta. Hvalfjarðarsveit kom best út með tæplega 50 fleiri aðflutta en brottflutta á hverja 1.000 íbúa. Þar á eftir komu Grundarfjarðarbær og Dalabyggð. Flutningsjöfnuður var hins vegar neikvæður í Borgarbyggð, Snæfellsbæ og Eyja- og Miklaholtshreppi.

Þegar horft er til alls tímabilsins 2021–2025 er myndin mun jákvæðari. Hvalfjarðarsveit kemur þar einnig best út, Dalabyggð er í öðru sæti og Borgarbyggð í því þriðja.

Sérstök athygli er vakin á búferlaflutningum kvenna. Flutningsjöfnuður þeirra var að meðaltali neikvæður í Snæfellsbæ og Grundarfjarðarbæ á tímabilinu, en þróunin fór batnandi í báðum sveitarfélögum.

Í Glefsunni er jafnframt bent á að búferlaflutningar geti sveiflast mikið milli ára, sérstaklega í fámennum sveitarfélögum. Því sé mikilvægt að horfa til lengri tímabila þegar þróun byggðarlaga er metin.

Niðurstöðurnar birtast í 8. tölublaði Glefsu árið 2026, sem Vífill Karlsson tók saman fyrir SSV. Hægt er að nálgast Glefsu hér.

Greiningin byggir á gögnum Hagstofu Íslands og eru niðurstöðurnar settar fram á landfræðilegum kortum.