Haustþing Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) fór fram í félagsheimilinu Þinghamri á Varmalandi, dagana 14. og 15. október. Á þinginu komu saman sveitarstjórnarfulltrúar víðs vegar af Vesturlandi til að fjalla um helstu verkefni og áherslur landshlutans á komandi misserum.
Á fyrsta degi þingsins voru fjárhagsáætlun og starfsáætlun SSV fyrir árið 2027 kynntar ásamt starfsemi SSV og Markaðsstofu Vesturlands. Einnig var starfsemi Sorpurðunar Vesturlands kynnt en þar gafst nýju sveitarstjórnarfulltrúum tækifæri til að kynnast verkefnum samtakanna og samstarfi sveitarfélaganna á Vesturlandi.
Margrét Björk fagstjóri áfangastaða – og markaðssviðs fór yfir starfsemi Markaðsstofu Vesturlands og Áfangastaðastofu
Hrafnhildur Tryggvadóttir framkvæmdarstjóri Sorpurðunar Vesturlands fór yfir starfsemina
Páll Brynjarsson framkvæmdarstjóri SSV fór yfir starfsemi, starfsáætlun og fjárhagsáætlun SSV
Grétar S. Theodórsson samskiptastjóri Samband íslenskra sveitarfélaga ávarpaði gesti
Ólafur Adolfsson fyrsti þingmaður Norðvestur kjördæmis flutti ávarp á þinginu
María Rut Kristinsdóttir þingmaður og formaður umhverfis – og samgöngunefndar flutti ávarp
Stefán Vagn Stefánsson alþingismaður Norðvestur kjördæmis tók þátt í umræðum
Þá fluttu alþingismenn úr Norðvesturkjördæmi og fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga ávörp og tóku þátt í umræðum þar sem farið var yfir málefni sem snerta sveitarfélög, byggðaþróun og framtíð landshlutans.
Síðdegis hófst vinna í vinnuhópum um ályktanir þingsins. Þar sem fjallað var um fjölbreytt málefni, meðal annars atvinnu- og nýsköpunarmál, ferðaþjónustu, samgöngur, velferðarmál, menntun, menningu, umhverfis- og loftslagsmál.
Vinnuhópar að störfum
Á öðrum degi þingsins var sérstök umfjöllun um velferð á Vesturlandi. Kynnt voru verkefnin Gott að eldast á Vesturlandi og Farsældarráð Vesturlands áður en fram fóru pallborðsumræður um velferðarmál með þátttöku fulltrúa sveitarfélaga, heilbrigðisþjónustu og ríkis.
Líf Lárusdóttir verkefnisstjóri Gott að eldast á Vesturlandi, kynnti verkefnið
Bára Daðadóttir verkefnastjóri Farsældarráð Vesturlands kynnti verkefnið
Pallborðsumræður um velferð á Vesturlandi
Haraldur Benediktsson oddviti úr Hvalfjarðarsveit kastar fram spurningu á pallborðið
Þinginu lauk með afgreiðslu áætlana og ályktana sem munu marka áherslur SSV í sameiginlegri hagsmunagæslu og þróunarstarfi fyrir Vesturland á komandi ári.
