Farsældardagur Vesturlands 2026 haldinn í Hjálmakletti

SSVFréttir

Farsældardagur Vesturlands 2026 verður haldinn í Hjálmakletti í Borgarnesi fimmtudaginn 19. nóvember kl. 10:00–15:00.

Að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á forvarnir, foreldra og frístundir, en þau málefni eru meðal lykiláherslna í aðgerðaráætlun Farsældarráðs Vesturlands. Markmið dagsins er að efla samstarf, samráð og samtal um farsæld barna og ungmenna á Vesturlandi og skapa vettvang fyrir fagfólk, sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila til að miðla reynslu og þekkingu.

Nánari dagskrá verður kynnt síðar, en áhugasamir eru hvattir til að taka daginn frá.

Skráning er hafin og stendur til og með mánudagsins 15. nóvember.

Dagsetning: 19. nóvember 2026
Tími: 10:00–15:00
Staður: Hjálmaklettur, Borgarnesi
Skráningarfrestur: 15. nóvember 2026

Frekari upplýsingar verða birtar þegar nær dregur deginum.

Skráningarhlekkur er hér.