Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) hafa verið starfrækt frá árinu 1969 og eru sameiginlegur samstarfsvettvangur sveitarfélaganna á Vesturlandi. Starfssvæði samtakanna nær frá botni Hvalfjarðar í suðri að botni Gilsfjarðar í norðri. Öll sveitarfélög á Vesturlandi eiga aðild að SSV og fulltrúa í stjórn.
Samkvæmt lögum SSV er meginhlutverk samtakanna að vinna að hagsmunum sveitarfélaganna á Vesturlandi. SSV hefur því mikilvægu hlutverki að gegna þegar kemur að sameiginlegum hagsmunamálum landshlutans og framþróun byggðar á Vesturlandi.
Eitt af markmiðum samtakanna er einnig að efla samstarf sveitarfélaganna og stuðla að aukinni þekkingu sveitarstjórnarfólks á verkefnum sveitarstjórna. Með því er unnið að því að styrkja sveitarstjórnarstigið og gera störf og verkefni sveitarfélaga bæði eftirsóknarverðari og áhugaverðari.
SSV vinnur jafnframt að því að kynna kosti Vesturlands, efla samkennd íbúa og styrkja stöðu landshlutans í samfélagslegu og atvinnulegu tilliti. Samtökin leggja þannig sitt af mörkum til að auka sýnileika Vesturlands og styðja við jákvæða þróun á svæðinu.
Núverandi stjórn samtakanna hélt sinn síðasta fund á kjörtímabilinu á miðvikudaginn síðastliðin. Auka aðalfundur fer fram þann 1. júlí næstkomandi, þar sem kosin verður ný stjórn SSV.
Á mynd má sjá:
Einar Brandsson og Ragnar B. Sæmundsson formaður SSV frá Akraneskaupstað
Guðveig Lind Eyglóardóttir og Sigurður Guðmundsson frá Borgarbyggð
Sigurbjörg Ottesen frá Eyja- og Miklaholtshrepp
Garðar Svansson frá Grundarfjarðarbæ
Pétur Davíðsson frá Skorradalshrepp
Júníana Björg Óttarsdóttir frá Snæfellsbæ
Páll Snævar Brynjarsson framkvæmdarstjóri SSV
Á myndina vantar en tóku þátt á fundinum í gegnum TEAMS:
-Jakob B. Jakobsson frá Stykkishólmi
-Ingibjörg Þ. Steinudóttir frá Dalabyggð
-Andrea Ýr Arnarsdóttir frá Hvalfjarðarsveit
