Seinni lotan í Vesturbrú fer af stað með krafti og mikill fróðleikur verið lagður inn hjá teymunum okkar.
Lotan hófst með ráðgjafafundum þar sem teymin gátu sótt í viskubrunn atvinnuráðgjafa SSV, Helgu og Hrafnhildi, ásamt Svövu í RATA og Thelmu hjá Nývest.
Fimmtudaginn 11. janúar var svo staðarlota í Sjóminjasafninu á Hellissandi. Dagurinn hófst á umræðum um fjárfesta og tækifæri til þátttöku í frumkvöðlakeppnum. Sem fyrr var það Svava okkar sem leiddi umræður og svaraði spurningum. Meðal þeirra góðu verkfæra sem teymin fá í Vesturbrú er gerð viðskiptaáætlunnar en það er lifandi plagg sem teymin geta nýtt sér í eigin rekstri.
Meira um staðarlotuna má sjá á heimasíðu Nývest
Mentorar á staðarlotu Vesturbrúar á Hellisandi 11 janúar s.l. Ragnheiður, Gyða, Gunnar, Anna Ólöf, og Ólafur.