Frá árinu 1991 hefur félagsmálaráðuneytið veitt styrki til atvinnumála kvenna.
Nú hefur verið auglýst og er umsóknarfrestur til 28. mars 2005.
Tilgangur styrkveitinga er einkum.
- Vinnumarkaðsaðgerðir til að draga úr atvinnuleysi meðal kvenna.
- Efla atvinnulíf í dreifbýli og auka fjölbreytni í atvinnulífi.
- Auðvelda aðgang kvenna að fjármagni.
Á meðfylgjandi slóð má finna auglýsingu Vinnumálastofnunar um styrki til atvinnumála kvenna.