VEFFUNDUR: Vesturland í sókn – Kolefnisspor Vesturlands

SSVFréttir

SSV boðar til fundar á Teams miðvikudaginn 26. maí kl. 09:00-10:00.

Á fundinum mun Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur fara yfir helstu niðurstöður úr skýrslu sem hann og fyrirtæki hans UMÍS hafa unnið fyrir Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi um Kolefnisspor Vesturlands. Skýrslan kom út fyrr í þessum mánuði og í henni koma fram mögulegar aðgerðir til að minnka kolefnissporið.

SKRÁNING HÉR

Skráningu lýkur þriðjudaginn 25. maí kl. 16:00. Þeir sem skrá sig fá hlekk á veffundinn.