Haustþing Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) var haldið á Varmalandi 15. október þar sem fulltrúar sveitarfélaga víðs vegar af Vesturlandi komu saman til að ræða framtíðarsýn og helstu hagsmunamál landshlutans. Á þinginu voru samþykktar ályktanir sem endurspegla sameiginlega sýn sveitarfélaganna um áframhaldandi uppbyggingu, bætt lífsgæði og aukið jafnræði milli landsvæða.
Í ályktunum þingsins er meðal annars kallað eftir aukinni fjárfestingu í samgönguinnviðum, eflingu heilbrigðis- og menntaþjónustu, auknu afhendingaröryggi raforku og markvissum aðgerðum til að styðja við atvinnuuppbyggingu og nýsköpun. Jafnframt er lögð áhersla á að styrkja menningar- og velferðarþjónustu, bæta aðgengi að opinberri þjónustu og tryggja landsbyggðinni sanngjarna hlutdeild í opinberri fjárfestingu og störfum.
Sveitarfélögin á Vesturlandi leggja áherslu á að öflugir innviðir, traust þjónusta og fjölbreytt atvinnulíf séu lykilforsendur áframhaldandi vaxtar og samkeppnishæfni landshlutans. Ályktanir Haustþings SSV 2026 má nálgast í meðfylgjandi skjölum.
ályktanir atvinnumál – 2026 lokaskjal_2
Ályktun Haustþing SSV 2026_Umhverfis orku- og loftlagsmál -húsnæðsmál
Ályktun Haustþing SSV 2026_Samgöngur
