Undirbúningur hafinn að innleiðingu nýrrar framtíðarlausnar til meðhöndlunar á brennanlegum úrgangi í stað urðunar

SSVFréttir

Fjögur sorpsamlög á suðvesturhorni landsins og umhverfis- og auðlindaráðuneytisið hafa gert með sér samning um forverkefni til undirbúnings að innleiðingu framtíðarlausnar til meðhöndlunar á brennanlegum úrgangi í stað urðunar. Samband íslenskra sveitarfélaga mun auk þess tengjast verkefninu með sinni sérþekkingu á málaflokknum.

Sorpsamlögin fjögur eru SORPA bs., Kalka sorpeyðingarstöð sf., Sorpurðun Vesturlands hf. og Sorpstöð suðurlands bs. Starfssvæði þessara samlaga nær frá Gilsfirði í vestri að Markarfljóti í austri og falla þar til um 83 – 85% alls þess úrgangs sem fellur til á öllu landinu.

Í ljósi vaxandi krafna um bætta meðhöndlun og flokkun úrgangs og áherslu á að lágmarka þörf fyrir urðun á úrgangi liggur fyrir að á komandi árum þarf að breyta meðhöndlun á brennalegum úrgangi sem hingað til hefur verið urðaður.

Fyrirliggjandi upplýsingar frá þessum samlögum og niðurstöður nýlegrar greiningar Iceland Resource á brennsluþörf á Íslandi vegna breyttrar meðhöndlunar feli í sér þörf á brennslulausn fyrir allt að 100 þ. tonn árlega.

Forverkefnið er fyrsta skref í undirbúningi að innleiðingu lausnarinnar og er ætlað að undirbyggja sem best ákvörðun um tæknilausnir, staðarval, umfang fjárfestingar, áhættugreiningu og annað sem skiptir máli við ákvarðanatöku um endanlegar útfærslur leiða og lausna sem velja þarf.  Þó svo að meginþungi þarfarinnar tengist starfssvæði samlaganna fjögurra, þá verður við vinnslu verkefnisins horft til leiða og lausna fyrir haldið allt.

Gert er ráð fyrir að niðurstöður þessa forverkefnis liggi fyrir innan fjögurra mánaða, og þær leggi síðan grunn að ákvörðun um frekari undirbúning og aðgerðir við innleiðingu þeirrar lausnar sem best verður talin henta.

Fulltrúar sorpsamlaganna fjögurra við undirritun í Borgarnesi 9. júní 2021. Frá vinstri: Önundur Jónasson stjórarformaður KÖLKU, Hrefna B. Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Sorpurðunar Vesturlands, Líf Magneudóttir, stjórnarformaður SORPU og Jón Valgeirsson, stjórnarformaður Sorpstöðvar Suðurlands Líf Magneudóttir stjórnarformaður SORPU og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra við undirritun á ráðuneytinu 10. júní 2021