List fyrir alla auglýsir nú eftir umsóknum um listviðburði eða verkefni á sviði barnamenningar barna á grunnskólaaldri. Markmiðið er að efla barnamenningu á öllu landinu, enda eru það meginmarkmið Listar fyrir alla að börn og unglingar hafi jafnt aðgengi að menningu og listum í hæsta gæðaflokki.
Umsóknarfrestur er til 14. mars 2022 , sótt er um á https://listfyriralla.is/
og þar má jafnframt finna nánari upplýsingar.
List fyrir alla er verkefni sem var komið á laggirnar á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins, og var skipaður starfshópur árið 2013. Vakin er athygli á áðurnefndri heimasíðu verkefnisins, listfyriralla.is þar sem má finna upplýsingar um menningarstarf sérsniðið fyrir börn á öllu landinu.