Bæjar- og sveitarstjórar á Vesturlandi ásamt nokkrum oddvitum af svæðinu og framkvæmdastjóra SSV funduðu í Borgarnesi mánudaginn 14. nóvember s.l.. Á fundinum var komið inn á ýmis málefni, s.s. almannavarnir, samstarf slökkviliða, stafræna þróun í sveitarfélögunum, eflingu öldrunarþjónustu, stofnun safnaklasa, almenningssamgöngur, samgöngumál og innviði. Að fundi loknum sótti hópurinn ráðstefnu Sorpurðunar Vesturlands um úrgangsmál sem fór fram á Hótel Hamri.