Tónlistarhátíðin Sátan í Stykkishólmi er hafin

SSVFréttir

Sátan er þriggja daga þungarokkshátíð haldin í Stykkishólmi á Snæfellsnesi.
Hátíðin fékk hæsta styrk úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands í ár en hátíðin er nú haldin í þriðja sinn.
Hátíðin leggur áherslu á að bjóða upp á fjölbreytt úrval af fremstu þungarokkshljómsveitum Íslands hverju sinni ásamt vel völdum erlendum hljómsveitum.
Allir eru velkomnir á Sátuna óháð uppruna, litarhafti, trúarskoðunum, kyni eða kynhneigð, og það er aðeins eitt markmið: að allir, starfsfólk, hljómsveitir og gestir, fari heim brosandi eftir frábæra hátíð!
Hægt er að kynna sér dagskrá hátíðar hér.