Málþing yfirfærsla málefna fatlaðra til sveitarfélaga 2011

Samtök Sveitarfélaga á VesturlandiFréttir

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi standa fyrir málþingi um yfirfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélaga 2011.

Málþingið verður haldið á Hótel Hamri þann 9. nóvember og hefst kl. 17. Dagskrá þingsins er hér.

Við fáum góða gesti til fundarins eins og Þór G. Þórarinsson, skrifstofustjóra í félagsmálaráðuneytinu og þau Grétu Sjöfn Guðmundsdóttur, forstöðumann málefna fatlaðra á Norðurlandi vestra, og Gunnar Sandholt, félagsmálastjóra í Skagafirði, auk foreldri fatlaðs einstaklings sem heitir Guðný Ólafsdóttir.


Stjórnandi málþings: Páll Brynjarsson, formaður SSV og sveitarstjóri Borgarbyggðar.

Áætlað er að málþinginu ljúki kl. 19:15.

Málþingið er ætlað sveitarstjórnarfólki, fulltrúum í nefndum, starfsfólki sem vinnur við þjónustuna, notendum og aðstandendum þeirra og öllum þeim öðrum sem láta sig málið varða.