Borgarnes með víðfeðmasta þjónustusvæðið á Vesturlandi

SSVFréttir

Út er komin ný Glefsa SSV, Þjónustu- og atvinnusókn til Vesturlands. Þar er skoðað hvaðan íbúar sækja þjónustu og atvinnu til helstu þéttbýliskjarna á Vesturlandi. Greiningin byggir á þjónustukönnun Byggðastofnunar frá árinu 2024.

Niðurstöðurnar benda til þess að Borgarnes sé öflugasti þjónustukjarninn á Vesturlandi þegar horft er til landfræðilegrar útbreiðslu þjónustusóknar. Þátttakendur frá 25 stöðum sögðust sækja þjónustu þangað og þar af voru 15 staðir utan Vesturlands. Þjónustusvæði Borgarness virðist ná í að minnsta kosti um 200 km fjarlægð. Stykkishólmur sker sig einnig úr á Snæfellsnesi og þjónar samkvæmt könnuninni íbúum víðs vegar af nesinu.

Atvinnusókn er hins vegar mun staðbundnari en þjónustusókn. Á sunnanverðu Vesturlandi má þó sjá atvinnutengsl milli Akraness, Hvalfjarðarsveitar og Borgarness auk töluverðrar atvinnusóknar frá Akranesi og Hvalfjarðarsveit til höfuðborgarsvæðisins.

Hægt er að nálgast Glefsuna hér: Glefsa_7_2026_ThjonustuAtvinnusokn