Morgunblaðið vekur athygli á rannsókn SSV um óstaðbundin störf

SSVFréttir

Niðurstöður rannsóknar Vífils Karlssonar og Grétu Bergrúnar Jóhannesdóttur á óstaðbundnum störfum hafa vakið athygli, en Morgunblaðið fjallar um rannsóknina og möguleg áhrif aukins sveigjanleika á vinnumarkaði á búsetuval fólks.

Rannsóknin var unnin fyrir Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og niðurstöður hennar voru nýverið kynntar á ráðstefnu um byggðamál í Háskólanum á Akureyri.

Í umfjöllun Morgunblaðsins kemur meðal annars fram að 55% starfandi fólks á Íslandi sé í starfi sem að einhverju leyti er óstaðbundið. Þá vilji tæplega fjórðungur geta unnið allt að þrjá fjórðu hluta vinnutímans óstaðbundið, en um 10% geri það í dag.

Niðurstöðurnar benda jafnframt til þess að auknir möguleikar á óstaðbundinni vinnu geti haft áhrif á búsetuval. Um 20% höfuðborgarbúa segjast geta hugsað sér að búa annars staðar ef starf þeirra væri óstaðbundið. Samkvæmt umfjöllun Morgunblaðsins virðist meirihluti þeirra sem vilja flytja annað horfa til dreifbýlis eða sveitar.

Rannsóknin varpar þannig ljósi á tengsl vinnumarkaðar og byggðaþróunar og þær breytingar sem aukinn sveigjanleiki um starfsstöð getur haft í för með sér.

Hægt er að nálgast niðurstöður rannsóknar Vífils Karlssonar og Grétu Bergrúnar Jóhannesdóttur hér.

Lesa má umfjöllun Morgunblaðsins um rannsóknina hér.