Föstudaginn 1. október var haldin Úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Vesturlands í Landnámssetrinu í Borgarnesi þar sem veittir voru 17 styrkir til atvinnu- og nýsköpunarverkefna úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands.
Tilgangur Uppbyggingarsjóðs Vesturlands er að styrkja menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi. Sjóðurinn úthlutar einu sinni á ári til menningarverkefna en tvisvar á ári til atvinnu- og nýsköpunarverkefna.
Páll S. Brynjarsson, framkvæmdastjóri SSV setti athöfnina og byrjað var á að veita 17 styrki að upphæð rúmlega 17.mkr. en alls bárust 25 umsóknir í sjóðinn. Ólöf Guðmundsdóttir, atvinnuráðgjafi SSV og Helena Guttormsdóttir formaður úthlutunarnefndar afhentu styrkina. Þá kom að því að hlýða á fræðsluerindi frá annars vegar Páli Kr. Pálssyni ráðgjafa og eiganda hjá ráðgjafafyrirtækinu Áttum ehf. sem fjallaði um verkefni um viðskiptaáætlanir og hinsvegar Kára Viðarssyni, raðfrumkvöðli sem kynnti verkefnið sitt „Sjólón í Krossavík“ sem fékk einmitt styrk frá sjóðnum. Í lokin sagði Páll Brynjarsson frá verkefninu Nýsköpunarnet Vesturlands sem SSV er aðila að og hefur það að markmiði að tengja saman alla sem vilja vinna að nýsköpun á Vesturlandi, fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga.
Verkefnin sem hlutu styrki voru:
Krossavík – Sjólón / Kári Viðarsson 3.700.000
Sótt á þverhausamið / Guðmundur Runólfsson hf. 3.000.000
Styrkleikamiðstöð á sunnanverðu Snæfellsnesi / Arnaldur Máni Finnsson 1.500.000
Vinnslueldhús, sem framleiðir eftirrétti / Lýsudalur slf. 1.000.000
Uppbygging á vistvænni þurrkverksmiðju / Félagsbúið Miðhrauni 2 sf. 1.000.000
Valeria kaffibrennsla / Kanpo Ísland ehf. 840.000
Innflutningur og framleiðsla glugga gardína / Sylwester Wasilewski 750.000
Eldborgar Kind / Þóra Sif Kópsdóttir 750.000
Jarðeplarækt / Jökull Helgason 750.000
Sund og Sána í Móvík / Anna Sigríður Gunnarsdóttir 670.000
All in One_Iceland / Siðmenning ehf. 500.000
Áfangaheimilið Dunki / Berghildur Pálmadóttir 500.000
Saltmey Silkiprentun / Signý Gunnarsdóttir 500.000
Laufey / Áskell Þórisson 500.000
Flæðilækur upplýsingaskilti / Kristjón Sigurðsson 400.000
Hafsjórinn / Steinunn Gríma Kristinsdóttir 370.000
Símasögur / Glimrandi framleiðsla ehf. 300.000