Við leitum til skapandi krakka á Vesturlandi!

SSVFréttir

Þekkir þú óendanlega sniðugan krakka sem er með hugmynd að nafni sem fangar kraft og  gleði í menningu barna á Vesturlandi ?

Taktu þátt í nafnasamkeppninni og láttu þína rödd heyrast!

Sigurvegari keppninnar vinnur pizzaveislu fyrir sinn bekk eða deild á skemmtikvöldi og höfundur fær sérstakt viðurkenningarskjal.

Útfærsla er varðar sigurvegara á framhaldsskólaaldri verður gerð í samráði við sigurvegara. Keppnin er opin öllum börnum á Vesturlandi undir 18 ára.

Hægt er að setja inn eins margar tillögur og þú vilt á sérstakri þátttökusíðu samkeppninnar.

https://www.surveymonkey.com/r/R5TC3TH?

Nafnið verður afhjúpað í byrjun sumars, og verður notað á Barnamenningarhátið Vesturlands sem áætlað er að verði haldin til framtíðar í landshlutanum.

Skilafrestur er til 24. maí næstkomandi. Fyrir fyrirspurnir má hafa samband við trúnaðarmann keppninnar, Sigurstein Sigurðsson menningarfulltrúa SSV á netfangið sigursteinn@ssv.is.

Grípum tækifærið til að skapa nafn sem endurspeglar barnamenningu Vesturlands!