Úrslit í Noðrurlandameistaramótinu í járnsmíði

SSVFréttir

Um helgina var norðurlandameistaramót í eldsmíði á Byggðasafninu á Akranesi. Hið forna handverk, sem þróað var á járnöld lifir enn góðu lífi. Keppendur komu frá fimm löndum; Íslandi, Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Finnlandi.

Mikill áhugi var á keppninni og komu á annað þúsund manns að fylgjast með spennuþrunginni smíðinni og þegar tímavörður taldi niður í lok keppni meistara, brutust út fagnaðarlæti með lófataki. Smíðuð voru akkeri í öllum þremur flokkum og þurftu eldsmiðir að sýna fram á getu sem hæfði hverjum flokki.

Keppnin var haldin hér á landi árið 2013 að Görðum á Akranesi. Reynt er að hafa keppnina annað hvert ár og er næsta keppni áætluð í Danmörku eftir tvö ár.

Viðburðurinn var styrktur af Sóknaráætlun Vesturlands.