Breytingar á Áfangastaða- og markaðssviði SSV

SSVFréttir

Kristján Guðmundsson / Thelma Harðardóttir

Thelma Harðardóttir verkefnastjóri á Áfangastaða- og markaðssviði SSV og Markaðsstofu Vesturlands mun láta af störfum um miðjan ágúst.  Ákveðið hefur verið að ráða Kristján Guðmundsson í tímabundið starf verkefnastjóra frá 15. ágúst fram til 1. mars nk.  Kristján er öllum hnútum kunnugur í ferðaþjónustu á Vesturlandi, en hann starfaði hjá Markaðsstofu Vesturlands frá árinu 2013 fram á árið 2018, en hann var jafnframt forstöðumaður hennar frá hausti 2014 og fram að starfslokum.  Þá hefur Kristján starfað sem sölu – og markaðsstjóri hjá Hótel Húsafelli auk þess að sinna fleiri störfum tengdum ferðaþjónustu á svæðinu.

Um leið og við þökkum Thelmu fyrir vel unnin störf bjóðum við Kristján velkominn til starfa.