Sveitarfélögin á Vesturlandi senda frá sér svohljóðandi tilkynningu:
Hér má sjá frumhönnun um hvernig Sundabraut frá Reykjavík gæti litið út frá Gufunesi og yfir Kollafjörð. Teikning: Skýrsla starfshóps Vegagerðarinnar um legu Sundabrautar.Sveitarfélög á Vesturlandi hvetja til þess að þegar verði hafist handa við undirbúning að framkvæmdum við Sundabraut.
Sveitarfélögin á Vesturlandi fagna nýrri skýrslu um lagningu Sundabrautar þar sem skýrðir eru helstu valkostir um legu hennar og þverun Kleppsvíkur. Skýrslan er vel unnin og greinargóð og ljóst að hún er góður grunnur fyrir ákvörðunartöku um að hefja undirbúning að lagningu Sundabrautar nú þegar.
Samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar er hábrú yfir Kleppsvík talin mjög vænlegur valkostur, bæði hvað varðar kostnað og einnig myndi hún nýtast betur fyrir almenningssamgöngur, hjólandi og gangandi umferð. Það er von okkar að þessi lausn höggvi á þann hnút sem verið hefur varðandi val á samgöngumannvirki til þverunar Kleppsvíkur. Hins vegar er afar mikilvægt að fara á sama tíma í allt verkefnið, þannig að framkvæmdir við þverun Kollafjarðar og vegalagningu á Álfsnesi, Gufunesi og Geldinganesi verði ekki látnar bíða efir því að þverun Kleppsvíkur verði lokið. Jafnvel mætti hugsa sér til að flýta framkvæmdum eins og kostur er að hefja lagningu Sundabrautar að norðanverðu.
Engin vafi er um mikilvægi Sundabrautar og ljóst er að hún verður ekki aðeins mikilvæg samgöngubót fyrir íbúa höfuðborgarinnar, hún verður ekki síður stór samgöngubót fyrir Vestlendinga, Vestfirðinga, Norðlendinga og jafnvel Austfirðinga. Sundabraut styttir vegalendir, eykur umferðaröryggi, bætir almenningssamgöngur og tryggir greiðari umferð. Það felur síðan í sér sterkari og heildstæðari vinnumarkað á suðvesturhorni landsins sem og að bæta aðgengi Vesturlands og annarra landshluta að Reykjavík og styrkja þar með hlutverk hennar sem miðstöð viðskipta og stjórnsýslu.
Sveitarfélögin á Vesturlandi hvetja því samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Reykjavíkurborg að hefja nú þegar undirbúningsvinnu við lagningu Sundabrautar þannig að verkefninu verði lokið eigi síðar en árið 2030.