Styrkir til uppbyggingar vinnustaðaklasa á landsbyggðinni

SSVFréttir

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki til uppbyggingar vinnustaðaklasa á landsbyggðinni. Alls verður úthlutað allt að 50 milljónum króna og er umsóknarfrestur til kl. 12.00 mánudaginn 28. september 2026.
Byggðastofnun annast umsýslu styrkjanna fyrir hönd innviðaráðherra, sem veitir þá á grundvelli byggðaáætlunar fyrir árin 2022–2036. Styrkirnir falla undir aðgerð B.7 um óstaðbundin störf.
Markmið aðgerðarinnar er að efla búsetufrelsi með því að fjölga atvinnutækifærum og auka fjölbreytni starfa á landsbyggðinni. Með stuðningi við vinnustaðaklasa er jafnframt stefnt að því að skapa betri aðstöðu fyrir óstaðbundin störf og styrkja atvinnulíf utan höfuðborgarsvæðisins.
Þetta er í annað sinn sem auglýst er eftir umsóknum um styrki til vinnustaðaklasa. Í mars síðastliðnum voru veittir styrkir til 26 vinnustaðaklasa, samtals að fjárhæð tæplega 50 milljónir króna.


Hverjir geta sótt um?
Styrkhæfir eru aðilar sem reka vinnustaðaklasa utan höfuðborgarsvæðisins. Við úthlutun verður sérstaklega horft til minni byggðarlaga þar sem atvinnulíf er einhæft, svæða sem orðið hafa fyrir verulegum atvinnulegum áföllum og svæða þar sem vinnusóknarsvæði eru fámenn.
Styrki er meðal annars hægt að nýta til:
• að mæta launakostnaði við að koma nýrri starfsemi á fót,
• að fjölga vinnurýmum gegn langtímaskuldbindingu um nýtingu þeirra,
• að standa straum af sameiginlegum rekstrarkostnaði vegna starfseminnar.

Hvað er vinnustaðaklasi?
Vinnustaðaklasi er skipulagt og samnýtt vinnurými þar sem boðið er upp á fjölbreytta vinnuaðstöðu fyrir fleiri en einn vinnustað eða starfsstöðvar ólíkra vinnustaða.
Nánar er fjallað um skilyrði, valnefnd og mat umsókna í reglum um úthlutun innviðaráðherra á framlögum samkvæmt stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022–2036. Einnig má finna nánari upplýsingar um verkefnið óstaðbundin störf í aðgerðaáætlun byggðaáætlunar, aðgerð B.7.

Nánari upplýsingar
• Auglýsing um úthlutun styrkjanna
• Umsóknargátt Byggðastofnunar
• Reglur um úthlutun innviðaráðherra á framlögum samkvæmt stefnumótandi byggðaáætlun 2022–2036
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Árnason, sérfræðingur á þróunarsviði Byggðastofnunar, í netfanginu sigurdur@byggdastofnun.is.