Opinn fundur: Vesturland í sókn – Ný atvinnutækifæri á Vesturlandi

SSVFréttir

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi standa fyrir opnum fundi á TEAMS miðvikudaginn 17. febrúar og hefst fundurinn kl. 09:00.
Á fundinum mun Hafsteinn Helgason verkfræðingur og ráðgjafi hjá EFLU fara yfir ýmis tækifæri sem eru að verða til í atvinnulífinu. Hafsteinn hefur um árabil komið að ýmsum viðskiptaþróunarverkefnum fyrir hönd fyrirtækisins, en hann var sviðsstjóri viðskiptaþróunar hjá EFLU.
Hafsteinn hefur leitt verkefni um iðnþróun, staðarval fyrirtækja, innviðauppbyggingu, orku- og vetnismál svo fátt eitt sé nefnt. Þá hefur hann verið kennari við verkfræðideild Háskóla Íslands um langt skeið.
Allir velkomnir
SSV
Skráning fer fram á þessari slóð: https://www.surveymonkey.com/r/vesturlandisokn
ATH – Það þarf að skrá sig á slóðinni með nafni og netfangi í síðasta lagi þriðjudaginn 16. febrúar og í framhaldinu fá þeir sem skrá sig sent fundarboð á TEAMS.