Þann 1. september rennur út umsóknarfrestur í nýsköpunarhraðalinn Startup Landið. Þau sem vilja fræðast um hraðalinn eru hvött til fylgjast með rafrænum kynningarfundi sem verður haldinn 27. ágúst.
Startup Landið er nýsköpunarhraðall fyrir frumkvöðla á landsbyggðinni. Að skipulagningu landshlutasamtök sveitarfélaganna um land all en markmiðið er að skapa vettvang fyrir frumkvöðla og áhugafólk um nýsköpun sem vill láta að sér kveða. Frekari upplýsingar um hraðalinn má finna á startuplandid.is
Hlekkur á rafrænan fund má finna hér.
Ráðgjafatímar Tækniþróunarsjóðs í boði á TEAMS
Tækniþróunarsjóður býður upp á ráðgjafatíma á TEAMS fyrir einstaklinga, fyrirtæki og teymi sem hafa áhuga á að sækja um styrki úr sjóðnum.
Með því að bjóða upp á rafræna ráðgjafatíma á TEAMS geta fleiri nýtt sér þjónustuna óháð búsetu og fengið leiðsögn við undirbúning umsókna.
Landshlutasamtök sveitarfélaganna starfa saman að atvinnuþróun og nýsköpun um allt land, og á fundi þeirra og Tækniþróunarsjóðs fyrr á árinu var rætt um mikilvægi þess að jafna aðgengi að ráðgjöf fyrir umsækjendur óháð búsetu.
Þau sem hafa áhuga á að sækja um í Tækniþróunarsjóð eru hvött til að kynna sér þjónustuna. Hægt er að nálgast upplýsingar um Tækniþróunarsjóð hér.
