Menningaruppeldi – Pallborðsumræður í beinu streymi í kvöld

SSVFréttir

Kæru Vestlendingar,
Það er komið að því!  Fyrsta pallborðið verður í beinu streymi í kvöld á milli 20:00 og 21:00. Fjórar öflugar konur af sviði kennslu og ráðgjafar á Vesturlandi ræða um menningaruppeldi:

  • Jónína Erna Arnardóttir (skólastjóri Tónlistarskóla Akraness)
  • Anna Sigríður Guðbrandsdóttir (myndmenntakennari)
  • Signý Óskarsdóttir (stofnandi og ráðgjafi hjá Creatrix)
  • Eygló Bára Jónsdóttir (kennari og fulltrúi í menningarnefnd Grundarfjarðarbæjar)

Sigursteinn Sigurðsson stýrir umræðum. Allir þátttakendur geta tekið þátt í umræðunum með því að senda inn fyrirspurnir eða ábendingar í gegnum athugasemdakerfi Facebook og Mentimeter (Menti-kóði verður gefinn upp á fundinum).

Viðburðurinn á FB

Jafnframt er bent á umfjöllun menningarfulltrúa hjá SSV um stefnur og stöðu menningarmála á Vesturlandi á Youtube-rás SSV