Eyrarrósin 2023

SSVFréttir

Again the Sunset – Inga Huld Hákonardóttir and Yann Leguay – Skaftfell – myndlistarmiðstöð Austurlands

Fréttatilkynning frá Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Icelandair
15. mars 2023

Hver hlýtur Eyrarrósina 2023?

Auglýst eftir tilnefningum um framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni

 

Í átjánda sinn auglýsa Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Icelandair nú eftir umsóknum um Eyrarrósina. Viðurkenningin er veitt framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni sem hefur fest sig í sessi. Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 miðvikudaginn 13. apríl.

Meðal fyrri verðlaunahafa má nefna Þjóðlagahátíðina á Siglufirði, Bræðsluna á Borgarfirði eystra, Skaftfell, Frystiklefann á Rifi, Aldrei fór ég suður, Ferska vinda í Garði, List í ljósi á Seyðisfirði, Skjaldborg á Patreksfirði og nú síðast brúðuleikhúsið Handbendi á Hvammstanga.

Eyrarrósarhafinn hlýtur 2,5 milljón króna peningaverðlaun, gert verður myndband um verkefnið og því gefinn kostur á því að standa að viðburði á aðaldagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2024.

Að auki verða veitt þrenn hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar til verkefna sem hafa verið starfrækt í minna en þrjú ár. Hver hvatningarverðlaun eru 750 þúsund krónur.

Allar nánari upplýsingar um fyrirkomulag Eyrarrósarinnar og umsóknareyðublað má finna á heimasíðu Listahátíðar: www.listahatid.is/eyrarrosin