Nýir starfsmenn hjá SSV

SSVFréttir

Í síðustu viku voru ráðnir tveir nýir starfsmenn til starfa SSV, en ráðningarferlið var unnið með Hagvangi.

Hrafnhildur Tryggvadóttir var ráðin í starf atvinnuráðgjafa, en 12 umsóknir bárust um starfið.   Hrafnhildur er með BSc próf í náttúruvísindum og umhverfisfræði frá LBHÍ og master í forustu og stjórnun með áherslu á verkefnastjórnun frá Háskólanum á Bifröst.  Hún starfaði í 9 ár sem framkvæmdastjóri Upplýsinga- og kynningarmiðstöðvar Vesturlands og starfaði í 4 ár sem ráðgjafi í umhverfismálum hjá Environice.  Frá 2015 hefur hún starfað hjá Borgarbyggð, fyrst sem verkefnisstjóri á umhverfis- og skipulagssviði og síðar sem deildarstjóri umhverfis- og framkvæmdamála.  Við sjáum fyrir að reynsla hennar af umhverfis- og loftlagsmálum, landbúnaðarmálum, ferðaþjónustu og almennt af starfsemi sveitarfélaga muni nýtast vel og auka breiddina í ráðgjafahópnum okkar.

 

Kristján Guðmundsson var ráðinn í starf verkefnisstjóra markaðsmála á áfangastaða- og markaðssviði, en 19 umsóknir bárust um starfið.   Hann er með BSc próf íferðamálafræði og er í mastersnámi í markaðsfræði við Háskólann á Bifröst.  Kristján starfaði hjá Markaðsstofu Vesturlands frá 2013 til 2018 og þar af sem forstöðumaður í fjögur ár.   Hann starfaði síðan sem sölu- og markaðsstjóri hjá Hótel Húsafelli og umsjónarmaður orlofshúsa í Svignaskarði samhliða námi.   Kristján var ráðinn tímabundið í starfi verkefnastjóra á áfangastaða- og markaðssviði hjá SSV  s.l. haust.   Kristján hefur mikla þekkingu og reynslu af ferðaþjónustu á Vesturlandi og samstarfi við markaðs- og stoðþjónustu ferðamála bæði í             heimahéraði  og  á landsvísu   sem mun nýtast vel í starfi verkefnisstjóra.