Beint frá býli dagurinn um allt land

SSVFréttir

Beint frá býli dagurinn verður haldinn um allt land þann 18. ágúst kl. 13-16 og verður viðburður haldinn í hverjum landshluta fyrir sig í tilefni dagsins. á Vesturlandi mun Grímsstaðaket á Grímsstöðum í Reykholtsdal opna býli sitt fyrir gestum með fjölbreyttri dagskrá í samvinnu við heimavinnsluaðila og smáframleiðendur í landshlutanum.

Þann 18. ágúst opna Grímsstaðir í Reykholtsdal sem rekur Grímsstaðakjöt – kjötvinnslu býli sitt fyrir gestum í tilefni af Beint frá býli deginum sem er nú haldinn annað árið í röð í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV).

Þann dag munu hvorki meira né minna en 18 heimavinnsluaðilar og smáframleiðendur matvæla úr landshlutanum mæta á Grímsstaði til að kynna og selja vörur sínar.

  • Matarmarkaðurinn verður í tjöldum á svæðinu
  • Gestir fá ókeypis kökusneið, kaffi og djús
  • Veitingasala
  • Leiðsögn um sláturhúsið og kjötvinnsluna
  • Heimalningar og hestar (teymt undir)
  • Traktoralest, drullubú og og fjölbreytt leiktæki
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest og eiga skemmtilegan dag saman!