Aukaaðalfundar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi fer fram á Hótel Hamri, Borgarnesi miðvikudaginn 22. júní 2022. Sama dag verður einnig aukaaðalfundur Heilbrigðisnefndar Vesturlands.
Dagskrá miðvikudaginn 22 júní verður sem hér segir:
Kl. 13:00 Aukaaðalfundur Heilbrigðisnefndar Vesturlands
Kl. 14:00 Aukaaðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi
Eftirtaldir dagskrárliðir verða teknir fyrir á aukaaðalfundi SSV:
- Kosning stjórnar
- Önnur mál löglega fram borin
- Kynning á starfsemi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi
Seturétt á aukaaðalfundi SSV eiga sveitarstjórnarfulltrúar á Vesturlandi sem kosnir eru af sveitarfélögunum sem fulltrúar á aðalfund SSV. Nánar er kveðið á um kjör fulltrúa á aðalfund í 5. gr. laga SSV. Vakin er athygli á því að á aðalfundi SSV sem fór fram 16. mars s.l. voru afgreidd öll önnur verkefni aðalfundar en kosning í stjórn.
Fulltrúar á aðalfundi SSV hafa jafnframt seturétt á aukaaðalfundi Heilbrigðisnefndar Vesturlands sem fer fram þennan dag. Rétt er að geta þess að sveitarfélögin þurfa að skila inn umboði um hver fer með atkvæðisrétt fyrir þeirra hönd á fundi Heilbrigðisnefndar Vesturlands.