Aðalfundur SSV fer fram 22. mars

SSVFréttir

Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi fer fram á Hótel Hamri, Borgarnesi miðvikudaginn 22. mars 2023.  Sama dag verða einnig aðalfundir Starfsendurhæfingar Vesturlands, Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands, Heilbrigðisnefndar Vesturlands og Sorpurðunar Vesturlands. 

Dagskrá miðvikudaginn 22. mars verður sem hér segir: 

Kl.09:30 Aðalfundur Starfsendurhæfingar Vesturlands 

Kl.10:15 Aðalfundur Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands 

Kl.11:15 Aðalfundur Heilbrigðisnefndar Vesturlands 

Kl.12:15 Hádegisverður 

Kl.13:00 Aðalfundur Sorpurðunar Vesturlands 

Kl.14:00 Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi 

 Eftirtaldir dagskrárliðir verða teknir fyrir á aðalfundi SSV samkvæmt lögum SSV:

  • Skýrsla  stjórnar SSV um starfsemi liðins árs
  • Ársreikningur  SSV, ásamt skýrslu endurskoðanda 
  • Ákvörðun um laun og þóknun til stjórnar og nefnda
  • Kosning endurskoðanda
  • Önnur mál löglega fram borin