Auglýsing um styrki til rannsókna á sviði byggðamála

Samtök Sveitarfélaga á VesturlandiFréttir

Byggðarannsóknasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna á sviði byggðamála árið 2016. Tilgangur sjóðsins er að efla byggðarannsóknir og bæta þannig þekkingargrunn fyrir stefnumótun og aðgerðir í byggðamálum.

Í umsóknum skal meðal annars koma fram greinargóð lýsing á rannsókninni, markmiðum hennar, ávinningi, nýnæmi og hvernig hún styður við tilgang sjóðsins. Við mat á umsóknum er meðal annars litið til hvernig verkefnið styður við markmið sjóðsins, vísindalegs- og hagnýts gildis þess og hæfni umsækjenda. Sjá nánar hér: