Styrkir til rannsókna á sviði byggðamála

Samtök Sveitarfélaga á VesturlandiFréttir

Byggðarannsóknasjóður hefur þann tilgang að efla byggðarannsóknir og bæta þannig þekkingargrunn fyrir stefnumótun og aðgerðir í byggðamálum. Stjórn sjóðsins var skipuð í byrjun árs og auglýsir nú í fyrsta skipti eftir umsóknum um styrki. Umsóknarfrestur er á miðnætti 8. mars. Nánari upplýsingar á heimasíðu Byggðastofnunar – smellið hér.


Í umsóknum skal meðal annars koma fram greinargóð lýsing á rannsókninni, markmiðum hennar, ávinningi, nýnæmi og hvernig hún styður við tilgang sjóðsins. Við mat á umsóknum er meðal annars litið til hvernig verkefnið styður við markmið sjóðsins, vísindalegs- og hagnýts gildis þess og hæfni umsækjenda.

Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki, rannsókna-, þróunar- og háskólastofnanir eða aðrir lögaðilar. Styrkir verða veittir til eins árs. Til úthlutunar eru 10 m.kr. og samkvæmt reglum sjóðsins er miðað við að styrkirnir séu ekki færri en þrír og ekki fleiri en fimm í hvert sinn.