Atvinnumál kvenna

Samtök Sveitarfélaga á VesturlandiFréttir

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um styrki til atvinnumála kvenna vegna ársins 2015. Umsóknarfrestur til og með 16.febrúar.


Til ráðstöfunar að þessu sinni eru 35 milljónir og er hámarksstyrkur kr. 3.000.000.

Styrkhæf verkefni skulu vera í eigu kvenna (amk 50%) og stjórnað af konum og skulu fela í sér atvinnusköpun til frambúðar. Um nýnæmi skal vera að ræða og kröfur eru gerðar um að verkefni skekki ekki samkeppnisstöðu á markaði.

Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar, áætlanagerðar, þróunarkostnaðar og markaðssetningar (innanlands og erlendis). Auk þess geta konur sem hafa nýlega stofnað fyrirtæki eða eru að stofna fyrirtæki, sótt um styrk til að koma fyrirtækinu í framkvæmd (launastyrkur). Með þeirri umsókn þarf að fylgja fullgerð viðskiptaáætlun.

Ekki eru veittir styrkir vegna stofnkostnaðar, framkvæmda, stærri fjárfestinga né rekstrarstyrkir. Vakin er athygli á því að styrkir eru skattskyldir og þarf að telja fram kostnað á móti.

Ekki eru veittir hærri styrkir en sem nema helming kostnaðar við verkefni en þetta á þó ekki við um gerð viðskiptaáætlunar.

Atvinnumál kvenna kynnir einnig nýtt kynningarblað þar sem viðtöl eru við þá styrkhafa sem hæstan styrk hlutu árið 2014 og má finna blaðið hér: http://en.calameo.com/read/003138568ad6fcdf3bb8b

Nánari upplýsingar um styrkina má finna á heimasíðu verkefnisins www.atvinnumalkvenna.is