Viltu auka líkur þínar á að fá styrk úr innlendum sjóðum?

Samtök Sveitarfélaga á VesturlandiFréttir

Skráðu þig þá á vinnusmiðju í síma 437 2390. Vinnusmiðjan er þátttakendum að kostnaðarlausu.


Í vinnusmiðjunni verður farið yfir undirstöðuatriði í gerð umsókna um styrki í innlenda sjóði. Farið verður yfir undirbúning fyrir umsóknir og hvernig styrkumsóknir eru ritaðar. Að vinnusmiðjunni lokinni gefst þátttakendum kostur á að skrifa umsókn og skila til leiðbeinanda innan 14 daga. Leiðbeinandi fer yfir umsóknina, rýnir hana og sendir til baka með upplýsingum um hvað var gott og hvað má bæta.