Öndvegisverkefni

Samtök Sveitarfélaga á VesturlandiFréttir

Vaxtarsamningur Vesturlands auglýsir eftir góðum viðskiptahugmyndum.

Stjórn Vaxtarsamnings Vesturlands hefur ákveðið að veita áhugaverðu verkefni(um) allt að 7 mkr. styrk.

Verkefnið þarf að grundvallast á vel unninni viðskiptaáætlun, hafa skírskotun til svæðisins, og nýsköpunar í atvinnulífi þess, ásamt því að skapa störf. Einstaklingar og starfandi fyrirtæki eða samstarf fleiri fyrirtækja geta sótt um styrki.

Ferli umsóknar verður með þeim hætti að skila þarf inn hugmyndalýsingu til stjórnar Vaxtarsamnings Vesturlands fyrir 1. mars 2013. Þar þarf að koma fram á 2–3 blaðsíðum, lýsing á hugmyndinni, gróf áætlun um hversu mörg störf verkefnið geti skapað, hversu mikla fjárfestingu sé um að ræða og áætlaða tímasetningu framkvæmda.

Stjórn Vaxtarsamnings Vesturlands mun velja 2–3 hugmyndir úr umsóknunum og veita þeim 300 þús. kr. styrk til að að ljúka við gerð viðskiptaáætlunar.

Skilafrestur viðskiptaáætlunar verður síðan 1. júní 2013 og niðurstöður kynntar fyrir lok júní.