Ný grein um stærðarhagkvæmni í rekstri íslenskra sveitarfélaga

VífillFréttir

Í dag kom út grein um stærðarhagkvæmni í rekstri íslenskra sveitarfélaga í Tímariti um viðskipti og efnahagsmál eftir Vífil Karlsson og Stefán Kalmansson hjá Rannsóknarsetri í byggða- og sveitarstjórnarmálum en SSV tengist starfsemi þess all nokkuð. Þetta er tíunda útgáfa RBS eða útgáfa í samstarfi við aðra á þeim tveimur árum sem setrið hefur starfað. Í greininni kemur fram að mikil stærðarhagkvæmni sé til staðar í rekstri sveitarfélaga. Í níu málaflokkum af 12 er stærðarhagkvæmni. Það gefur til kynna að fjölmennari sveitarfélög ættu að geta veitt þjónustu í þessum níu málaflokkum með hagkvæmari hætti en þau fámennari. Athygli vakti að í fjórum málaflokkum af þessum níu var stærðarhagkvæmni upp að vissu marki: Það bendir til að þegar fámennari sveitarfélög ná tilteknum fjölda íbúa virðist óhagkvæmni í rekstri þessara fjögurra málaflokka aukast með frekari fjölgun íbúa. Þessi mörk eru samt við einhverja tugi þúsunda íbúa. Í greiningunum var stórum tölfræðilíkönum beitt og gagnasafnið stórt þar sem það náði til allra íslenskra sveitarfélaga árin 2004-2022.

Greinina má nálgast í heild sinni á þessum hlekk endurgjaldslaust: