Landstólpinn – Samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar

Samtök Sveitarfélaga á VesturlandiFréttir

Byggðastofnun hefur ákveðið að veita árlega viðurkenningu á ársfundi sínum og verður það gert í fyrsta sinn á ársfundinum þann 25. maí n.k. sem haldinn verður í Vestmannaeyjum.

Það er von okkar að slíkur viðburður gefi jákvæða mynd af landsbyggðinni og af starfi stofnunarinnar. Viðurkenningin er hvatning og einskonar bjartsýnisverðlaun, því hugmynd að baki er að efla skapandi hugsun og bjartsýni.


Nokkur svipuð verkefni eru í gangi og sum hver hafa fastan sess. Sum þeirra einskorðast við ákveðin málaflokk eða þátttakendur. Samfélagsviðurkenningin er hins vegar þvert á málaflokka og opin öllum.

Viðurkenninguna má veita einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða sveitarfélagi. Það gæti t.d. verið eitthvert tiltekið verkefni eða starfsemi, umfjöllun eða annað og gæti bæði hafa vakið athygli á byggðamálum, landsbyggðinni í heild, eða einhverju tilteknu byggðarlagi og þannig aukið veg viðkomandi samfélags.

Viðurkenningin er auglýst í blöðum og á heimasíðu stofnunarinnar og hver sem er getur komið með ábendingu, sbr. val á manni/konu ársins. Jafnframt er óskað sérstaklega eftir ábendingum atvinnuþróunarfélaganna, enda reynum við ávallt að styrkja samstarf við félögin. Dómnefnd velur síðan úr.

Hafa má í huga við ábendinguna hvort viðkomandi hafi:

gefið jákvæða mynd af landsbyggðinni eða viðkomandi svæði

– aukið virkni íbúa eða fengið þá til beinnar þátttöku í verkefninu

– orðið til þess að fleiri verkefni/ný starfsemi verði til

– dregið að gesti með verkefni eða umfjöllun sinni

Ekki er nauðsynlegt að öllum þessum atriðum sé fylgt eftir, heldur séu þau höfð til hliðsjónar.

Viðurkenningin verður listmunur hannaður af lista- eða handverksfólki á því svæði þar sem fundurinn er haldinn. Þannig verður listmunurinn í ár hannaður af Vestmannaeyingi.

Það er von okkar og ósk að atvinnuþróunarfélögin taki þátt í valinu með því að senda okkur ábendingar fyrir 16. maí n.k. Það má gera annað hvort gegnum heimasíðuna okkar, byggdastofnun.is eða með því að senda póst á netfangið sigga@byggdastofnun.is

Nánari upplýsingar gefur Sigríður K. Þorgrímsdóttir, s. 455 5400