Hér má finna samantekt yfir helstu úrræði og aðgerðir sem ríkið hefur ráðist í vegna efnahagsáhrifa Covid-19: Aðgerðir stjórnvalda Viðspyrna fyrir íslenskt atvinnulíf Frestun opinberra gjalda Atvinnuleysisbætur vegna minnkaðs starfshlutfalls Minnkað starfshlutfall sjálfstætt starfandi einstaklinga Reiknivél fyrir minnkað starfshlutfall Breytingar á tryggingafé fyrir ferðaþjónustuaðila Vinnumálastofnun – spurningar og svör um launagreiðslur í sóttkví og fleira Byggðastofnun – skilmálabreytingar Greiðslufrestir á …
Aðalfundi SSV frestað
Stjórn SSV hefur ákveðið að fresta aðalfundi samtakanna sem halda átti 1. apríl n.k. um óákveðin tíma vegna samkomubanns. Ný dagsetning verður auglýst síðar.
Sjóðir sem styrkja barnamenningu á Íslandi
SSV vekur athygli á sjóðum sem styrkja barnamenningu á Íslandi. Annars vegar er það Barnamenningarsjóður Íslands sem auglýsir eftir umsóknum. Umsóknarfrestur er 1. apríl næstkomandi! Nánar á: Rannís – barnamenningarsjóður Þá auglýsir „List fyrir alla“ eftir umsóknum sem miðast við að bjóða uppá og miðla fjölbreyttum listviðburðum fyir börn á grunnskólaaldri, óháð búsetu. Umsóknarfrestur er 20. mars næstkomandi. Nánar á: …
Útgáfa Velferðarstefnu Vesturlands
Í dag, 12. mars er útgáfudagur Velferðarstefnu Vesturlands. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa í auknu mæli farið í stefnumótunarvinnu fyrir landshlutann og eru velferðarmál hluti af þeim verkefnum. Við vinnslu velferðarstefnunar var skipaður starfshópur aðila í velferðarmálum á Vesturandi. Það eru fulltrúar frá Heilbrigðisstofnun Vesturlands, dvalar- og hjúkrunarheimilum, æskulýðs-, tómstunda- og forvarnarfulltrúa, stjórnslýslunni, stjórn SSV og frá Starfsendurhæfingu Vesturlands. Auk …
Fyrsta alíslenska byggmjólkin að koma á markað
Þessa dagana er ný Byggmjólk sem er jurtadrykkur unnin úr íslensku byggi að fara í sölu í ýmsum verslunum hér á landi. Byggmjólkin er framleidd af Kaju Organic á Akranesi. Kaja Organic fékk fyrir tveimur árum öndvegisstyrk úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands til að þróa og undirbúa framleiðslu á Byggmjólkinni. Í tilefni þess að Byggmjólkin er komin í framleiðslu og er að …
Ráðstefnu um sameiningar sveitarfélaga frestað
Tekin hefur verið ákvörðun um að fresta ráðstefnu um sameiningar sveitarfélaga sem stóð til að halda á vegum SSV að Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit fimmtudaginn 12. mars n.k. vegna COVID-19 veirunnar. Því miður er þetta niðurstaðan en vonir standa til að hægt verði að halda ráðstefnuna seinni partinn í maí en það mun skýrast á næstu vikum.
Barnamenningarhátíð á Akranesi fær styrk úr Sóknaráætlun Vesturlands
Í ár var ákveðið að styrkja Barnamenningarhátíð á Akranesi með framlagi úr Sóknaráætlun Vesturlands. Undanfarin ár hafa barnamenningarhátíðir í landshlutanum verið styrktar með þessum hætti, en það var í fyrsta skipti gert árið 2017. Síðast var hátíðin haldin í Reykholti í Borgarfirði og þar á undan á Snæfellsnesi með góðum árangri. Samkvæmt Menningarstefnu Vesturlands 2016-2019 er lögð áhersla á að …
Ráðstefna: Sameiningar sveitarfélaga – Dagskrá
Fimmtudaginn 12. mars n.k. verður haldin ráðstefna um sameiningar sveitarfélaga að Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit og mun hún standa yfir frá kl.10:00 til 15:00. Eggert Kjartansson, formaður SSV mun opna ráðstefnuna og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra Íslands flytur ávarp. Að því loknu verður rætt um reynslu af sameiningum sveitarfélaga og svo hvernig sé hægt að sporna við því að jaðarbyggðir …
Ráðstefna um sameiningar sveitarfélaga
SSV mun standa fyrir ráðstefnu um sameiningar sveitarfélaga fimmtudaginn 12. mars n.k. Ráðstefnan verður haldin á Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit og mun standa yfir frá kl.10:00 til 15:00. Sveitarstjórnarfólk, fræðimenn og fleiri munu vera með erindi á ráðstefnunni og Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála mun ávarpa ráðstefnuna. Dagskrá ráðstefnunnar verður auglýst síðar í vikunni.
Stjórn SSV fjallar um opinber störf á Vesturlandi
Á stjórnarfundi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi í síðustu viku voru til umræðu opinber störf í landshlutanum. Rætt var um opinber störf á Vesturlandi með hliðsjón af hagvísi sem Vífill Karlsson hagfræðingur SSV tók saman. Jafnframt var rætt um tillögu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um fjölgun opinberra starfa á landsbyggðinni, í tillögu ráðherra eru Vestfirðir, Norðurland og Austurland skilgreind sem landsbyggð en …