Bifröst býður upp á BA nám i skapandi greinum næsta haust

SSVFréttir

Mikil gróska er í skapandi námi í Háskólanum á Bifröst. Um áraraðir hefur verið boðið uppá MA og MCM nám í menningarstjórnun. Síðastliðið haust var hleypt af stokkunum nýju diplóma námi í skapandi greinum og næsta haust verður boðið uppá BA nám á þeirri braut. Námsbrautin er sniðin fyrir þá sem vilja öðlast innsýn og skilning á starfi framleiðenda, verkefnastjóra, …

Hlaðvarpsþáttur vikunnar: Gísli Einarsson-Nýstofnað Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs

SSVFréttir

Hlaðvarp SSV – Vesturland í sókn heldur áfram vikulegri útgáfu þátta og í þætti þessarar viku spjallar Vífill Karlsson við Gísla Einarsson, sjónvarpsmann og einn stofnenda Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs. Margir hafa eflaust heyrt af stofnun félagsins enda mikil gleðitíðindi. Þeir ræddu um þetta áhugamannafélag, hvernig hugmyndina bar að og hvað er á döfinni næstu misserin. Þá segir Gísli okkur aðeins frá …

Samstarf vegna viðburða á Vesturlandi

SSVFréttir

Sóknaráætlun Vesturlands hefur ákveðið að styðja við viðburðadagskrá á Vesturlandi 2021. Þetta verkefni er unnið í framhaldi af svipuðu verkefni sem hleypt var af stokkunum með stuttum fyrirvara í fyrra og skipti miklu máli fyrir viðburðahald á Vesturlandi sumarið 2020. Við trúum því að nú fari að létta „kóvinu“ en vegna Covid19 hefur kreppt verulega að bæði hjá aðilum sem …

SAMVINNA – Pallborðsumræður í beinu streymi í kvöld

SSVFréttir

Nú er komið að lokum í fundaröðinni um endurskoðun Menningarstefnu Vesturlands. Umræðuefni kvöldsins er fimmti og síðasti hlutinn, samvinna. Pallborðið verður í beinu streymi í kvöld á milli 20:00 og 21:00. Fjórir öflugir einstaklingar sem starfa að menningarmálum á Vesturlandi ræða um samvinnu.   Margrét Björk Björnsdóttir (Forstöðumaður Áfangastaðastofu Vesturlands) Rögnvaldur Guðmundsson (Formaður Ólafsdalsfélagsins og framkvæmdastjóri fyrirtækisins Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar …

Græn atvinnuþróun og nýsköpun um land allt – Fundað með ráðherrum

SSVFréttir

Formenn og framkvæmdastjórar allra landshlutasamtakanna funduðu nýverið með Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Guðmundi Inga Guðbrandssyni, umhverfis- og auðlindaráðherra og Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, ferðmála-, nýsköpunar og iðnaðarráherra. Fundurinn bar yfirskriftina Græn atvinnuþróun og nýsköpun um allt land. Á fundinum kynntu landshlutasamtökin víðtæka starfsemi sína og einnig var rætt um tækifæri til aukins samstarfs milli þeirra og ráðuneytanna. Sérstaklega …

Vesturland – samráðsfundur um grænbók í fjarskiptum

SSVFréttir

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi bjóða til rafræns samráðsfundar um stöðu fjarskipta miðvikudaginn 14. apríl kl. 10:00 – 11:30. Á fundinum verður fjallað um fjarskipti á svæðinu, helstu áskoranir og tækifæri til framfara. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með erindum og umræðum í minni hópum. Fundurinn er hluti af fundaröð um allt land í tilefni af …

MENNINGARARFUR – Pallborðsumræður í beinu streymi í kvöld

SSVFréttir

Þá er komið að fjórða og næstsíðasta fundinum í þessari skemmtilegu fundaröð. Umræðuefni kvöldsins er fjórði hluti menningarstefnunnar, menningararfur. Pallborðið verður í beinu streymi í kvöld á milli 20:00 og 21:00. Fjórir flottir einstaklingar af sviði menningarmála á Vesturlandi ræða um MENNINGARARF Guðrún Jónsdóttir (Safnahús Borgarfjarðar) Guðrún Vala Elísdóttir (Símenntunarmiðstöð Vesturlands – RKÍ) Magnús A. Sigurðsson (Minjavörður Vesturlands) Bjarnheiður Jóhannesdóttir …

Opnað fyrir umsóknir fyrir Eyrarrósina 2021

SSVFréttir

Eyrarrósin hefur verið veitt sem viðurkenning framúrskarandi menningarverkefnum á landsbyggðinni allt frá árinu 2005. Nokkur verkefni af Vesturlandi hafa komist á Eyrarrósarlistann og þar má nefna Landnámssetur Íslands í Borgarnesi, Frystiklefann á Rifi, Northern Wave Film Festival, Plan-B Art Festival, Júlíana – hátíð sögu og bóka og Reykholtshátíðin. Landnámssetrið og Frystiklefinn hafa svo hlotið viðurkenninguna eftirsóttu. Eyrrarósin er með breyttu …

Aðalfundur SSV – fundargerð, ársskýrsla og ársreikningur

SSVFréttir

Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi fór fram á Hótel Hamri í Borgarnesi þann 24. mars síðast liðinn. Á sama degi héldu samstarfsaðilar sem að öllu leyti eða hluta til eru í eigu sveitarfélaga sína aðalfundi en það eru Sorpurðun Vesturlands, Simenntunarmiðstöð Vesturlands, Starfsendurhæfing Vesturlands og Heilbrigðiseftirlit Vesturlands. Alls voru um 50 aðilar sem mættu á fundina og sköpuðust góðar umræður. …

NÝSKÖPUN – Pallborðsumræður í beinu streymi í kvöld

SSVFréttir

Útlit er fyrir líflegan og spennandi fund í kvöld. Nú er komið að umræðum um þriðja hluta menningarstefnunnar, menningartengda nýsköpun. Pallborðið verður í beinu streymi í kvöld á milli 20:00 og 21:00.  Fjórir flottir og reynslumiklir einstaklingar á Vesturlandi ræða um um nýsköpun: Guðlaug Gunnarsdóttir (Kúlan) Heiðar Mar Björnsson (Muninn kvikmyndagerð) Kolbrún Sigurðardóttir (Leirbakaríið) Þorgrímur Einar Guðbjartsson (Rjómabúið Erpsstöðum) Sigursteinn …