Framtíðarmöguleikar Breiðafjarðar – fundaröð

SSVFréttir

 

Framtíðarmöguleikar Breiðafjarðar
      Leit að jafnvægi milli verndar og nýtingar

Upplýsinga- og umræðufundir á þremur stöðum við Breiðafjörð: 

ATHUGIÐ BREYTTAR TÍMASETNINGAR

  • Mánudaginn 11. mars, kl. 17 – 19.30 á Fosshóteli í Stykkishólmi  – LOKIÐ
  • Mánudaginn 25. mars, kl. 17 – 19.30 á Dalahóteli, Laugum í Sælingsdal
  • Þriðjudaginn  26. mars, kl. 17 – 19.30 í Félagsheimilinu Birkimel á Barðaströnd

Kynnt verður verkefni, sem hófst árið 2022 um forsendugreiningu fyrir verndun Breiðafjarðar með tilliti til byggðaþróunar og sjálfbærrar nýtingar.
Markmið fundarins er að heyra sjónarmið íbúa og hagaðila, stýrihópi verkefnisins til upplýsinga, en hann mun síðan gera tillögur til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Dagskrá:

Boðið verður upp á kaffiveitingar
Fundaumsjón: Sigurborg Kr. Hannesdóttir, hjá ILDI

Ítarefni: 

Sjá viðburð á Facebook