Barnó! er hafin

SSVBarnó, Fréttir

Barnamenningarhátíð Vesturlands, Barnó – BEST MEST VEST!, er nú hafin en hátíðin var sett við hátíðlega athöfn í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík fimmtudaginn 1. október. Þar stigu á svið Jazzhljómsveit Tónlistarskóla Stykkishólms, Carla og Juan voru með sirkusatriði auk þess sem dagskráin var kynnt formlega.
Kynnar kvöldsins voru engin önnur en leiklistargyðjan Thalía og Þorleifur, en þau skruppu alla leið úr Tjarnarbíói þar sem þau eru burðarhlutverkin í sýningunni „Heimsókn til Thalíu“, en það verk var sett upp fyrir nemendur í miðstigi í grunnskólum á Vesturlandi. Opnunarhátíðinni lauk með tónleikum Sandarans Davíðs Svans sem er upprennandi tónlistarmaður og sló í gegn á Solar Eclipse hátíðinni í sumar.
Fram undan er fjölbreytt dagskrá um allt Vesturland út október þar sem börn og ungmenni frá fæðingu til 18 ára eru í aðalhlutverki. Markmið Barnó er að börn fái tækifæri til að skapa, njóta og taka þátt í menningu í sinni heimabyggð. Á hátíðinni í ár verða tæplega 70 atriði í umsjón 41 aðila og spannar dagskráin fjölbreytt svið lista og menningar.
Meðal þess sem verður í boði eru myndlistar-, hönnunar-, skartgripa- og kvikmyndasmiðjur, tónleikar, sirkussýningar og fjölmargt fleira. Viðburðir fara fram víðs vegar um Vesturland allan októbermánuð.
Við hvetjum fjölskyldur um allt Vesturland til að kynna sér dagskrána og taka þátt í Barnó – Best Mest Vest!
Fylgjast má með Barnó á Facebook og Instagram og kynna sér dagskrá hátíðarinnar á ssv.is/barno.
Barnó er eitt af áhersluverkefnum Sóknaráætlunar Vesturlands og nýtur stuðnings Barnamenningarsjóðs Íslands.“