ENGLISH BELOW
Góðar fréttir fyrir skapandi fólk á Vesturlandi – umsóknarfrestur fyrir Barnó – BEST MEST VEST! 2026 hefur verið framlengdur til og með 24. ágúst 2026.
Barnó er sameiginleg barnamenningarhátíð Vesturlands þar sem börn og ungmenni fá að njóta, skapa og taka virkan þátt í fjölbreyttu menningarlífi um allt Vesturland. Hátíðin fer fram í október 2026 og enn er tækifæri til að senda inn hugmyndir að spennandi atriðum, viðburðum og skapandi verkefnum fyrir börn og ungmenni á aldrinum 0–18 ára.
Við hvetjum einstaklinga, listafólk, hópa, félagasamtök, skóla, stofnanir og aðra skapandi aðila til að nýta viðbótarfrestinn og senda inn hugmyndir. Um getur verið að ræða listsmiðjur, tónlist, dans, sviðslistir, skapandi verkefni eða eitthvað allt annað sem gleður, vekur forvitni og virkjar sköpun barna og ungmenna.
Sérstaklega er hvatt til verkefna sem stuðla að inngildingu, fjölbreytileika og virkri þátttöku barna og ungmenna.
Viðburðir þurfa að fara fram á Vesturlandi á tímabilinu 1.–31. október 2026 og fjárstuðningur getur verið í boði fyrir valin verkefni. Öll innsend atriði og verkefni verða tekin til skoðunar af stýrihópi Barnó sem sér um val á dagskrá hátíðarinnar.
Nýr umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst 2026.
Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband við Sigurstein, verkefnastjóra menningarmála hjá SSV, á netfanginu sigursteinn@ssv.is.
Skráið viðburði hér
///
Good news for creative people in West Iceland – the application deadline for Barnó – BEST MEST VEST! 2026 has been extended through 24 August 2026.
Barnó is a regional children’s culture festival in West Iceland, where children and young people are given opportunities to enjoy, create and actively participate in a diverse cultural programme across the region. The festival will take place in October 2026, and there is still time to submit ideas for exciting activities, events and creative projects for children and young people aged 0–18.
We encourage individuals, artists, groups, non-profit organisations, schools, institutions and other creative partners to make use of the extended deadline and submit their ideas. Projects may include art workshops, music, dance, performing arts, creative activities – or something entirely different that sparks joy, curiosity and creativity among children and young people.
Projects that promote inclusion, diversity and the active participation of children and young people are particularly encouraged.
Events must take place in West Iceland between 1–31 October 2026, and financial support may be available for selected projects. All submitted activities and projects will be reviewed by the Barnó steering group, which is responsible for selecting the festival programme.
The new application deadline is 24 August 2026.
For further information, please contact Sigursteinn, Cultural Project Manager at SSV, at
sigursteinn@ssv.is.