Barnó – BEST MEST VEST! hefur hlotið styrk úr Barnamenningarsjóði Íslands fyrir hátíðina sem mun fara fram um allt Vesturland í október 2026! Styrkurinn, sem var 6 milljónir króna er mikilvæg viðurkenning á verkefninu og kemur til viðbótar við þriggja milljóna króna framlag Sóknaráætlunar Vesturlands sem þegar hefur verið tryggt til verkefnisins.
Í tilefni af styrkveitingunni kom stýrihópur Barnó saman til síns fyrsta fundar í Borgarnesi. Þar var lagt af stað í metnaðarfulla vegferð hátíðarinnar í ár, farið yfir hugmyndir og verkefni fram undan og mótuð sýn fyrir áframhaldandi uppbyggingu barnamenningar á Vesturlandi. Í stýrihópnum sitja Hulda Sophia Loloiboni úr Dalabyggð, Arney Lilja Arnardóttir frá Stykkishólmi, Halldór Emil Unnarsson frá Akranesi, Daði Haagensen frá Akranesi og Veronika Jara Heimisdóttir úr Hvalfjarðarsveit, en Veronika er jafnframt fulltrúi Ungmennaráðs Vesturlands í hópnum.
Hluti stýrihópsins brunaði svo til Reykjavíkur og tóku við styrknum fyrir hönd Barnó við formlega athöfn Barnamenningarsjóðs í Höfuðstöðinni í Elliðaárdal. Jafnframt fengu styrk barnabókaverkefnið „Köttur útí mýri“ í Grundarfirði styrk, sem og að Brekkubæjarskóli á Akranesi fékk styrk úr Bókasafnasjóði styrk fyrir rannsókn um stöðu skólasafna á Íslandi. Innilega til hamingju með styrkina og glæsileg verkefni!
Með stuðningi Barnamenningarsjóðs og Sóknaráætlunar Vesturlands er ljóst að fram undan er kraftmikið og spennandi ár. Verkefnin eru þegar farin að taka á sig mynd og allt stefnir í sannkallaða Barnó-veislu um allt Vesturland árið 2026.
Því eins og við segjum alltaf: Barnó er BEST – MEST – VEST!
Styrkhafar Barnamenningarsjóðs 2026. Mynd Menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytið.
Halldór, Hulda og Veronika hoppandi glöð með styrkinn!
